Aðalsíða

Framhaldsskólapúlsinn 2016-17

4. janúar, 2017

Rúmlega 600 framhaldsskólanemar víða af landinu tóku þátt samræmdri nemendakönnun sem unnin var af Skólapúlsinum í nóvembermánuði síðastliðnum. Nemendur fengu könnunina bæði senda í tölvupósti og með sms skilaboðum. Könnuninni má svara beint á snjallsímum og tekur um 15 mínútur. Könnunin var nú framkvæmd í fjórða sinn og fengu þátttökuskólar niðurstöður með samanburði við aðra þátttökuskóla sem og eigin útkomu frá fyrri árum.