Skólapúlsinn býður þátttökuskólum í Skólapúlsinum uppá námskeið í notkun megindlegra rannsóknarniðurstaðna í skólastarfi. Námskeiðin eru sniðin að áherslum hvers skóla fyrir sig. Lengd, efnistök og verð eru ákveðin í samráði við skólastjórnendur á hverjum stað.
Kennari er Kristján Ketill Stefánsson. Kristján er náttúrufræði- og stærðfræðikennari frá Kennaraháskóla Íslands og með meistaragráðu í kennslufræði raungreina frá Háskólanum í Ósló. Kristján hefur á undanförnum árum unnið við tölfræðirannsóknir hjá rannsóknararfyrirtækinu Maskínu og Menntavísindasviði Háskóla Íslands og sérhæft sig í notkun megindlegra rannsóknaraðferða í þróunarstarfi skóla.