Ráðgjöf

Innifalið í áskrift að Skólapúlsinum er almenn ráðgjöf alla virka daga frá 08:00-16:00 í síma 5830700 og/eða í tölvupósti á skolapulsinn@skolapulsinn.is um notkun kerfisins og túlkun niðurstaðna.

Skólapúlsinn býður þátttökuskólum í Skólapúlsinum einnig uppá frekari ráðgjöf við túlkun á niðurstöðum og gerð þróunaráætlana til umbóta í skólastarfi. Ráðgjöfin er sniðin að hverjum skóla en oft er um að ræða sérhæfða greiningarvinnu og samvinnu við matsteymi hvers skóla fyrir sig.  Umfang og verð eru ákveðin í samráði við skólastjórnendur.