Aukakönnun

Með því að smella á „búa til aukakönnun“ í kerfinu er hægt að hnýta eigin aukakönnun aftan við komandi mánaðarkönnun. Nemendur svara þá Skólapúlsinum eins og venjulega en eftir að þeir hafa svarað opnum spurningum í lokin birtist síða með 1-20 spurningum sem skólinn hefur valið að hafa með þann mánuðinn.

Hægt er að búa til eigin spurningar eða velja úr safni spurninga sem bætt hefur verið í grunninn af notendum og aðstandendum Skólapúlsins. Niðurstöðurnar eru birtar með öðrum niðurstöðum Skólapúlsins í lok mánaðarins hér á þessari síðu. Hver spurning er með einstöku raðnúmeri (t.d. Sp. 34). Ef sama spurningin er notuð endurtekið yfir skólaárið birtast uppsöfnuð svör yfir skólaárið á sama hátt og í kjarnaspurningalistanum.