Spurningalista Skólapúlsins er skipt í fjóra flokka: Virkni, Líðan, Skóla- og bekkjaranda og opnar spurningar um viðhorf nemenda til skólans. Nú er spurningalistinn á sjö tungumálum: Íslensku, sænsku, dönsku, pólsku, litháísku, filippeysku og ensku.
Valið á flokkunum og spurningunum sem í þeim eru byggir að mestu á rannsóknum á íslenskum PISA gögnunum og kvörðum frá Námsmatsstofnun og HBSC (Health Behaviour in School-Aged Children) rannsókninni sem er samstarfsverkefni Háskólans á Akureyri og Lýðheilsustöðvar.
Stöðlunarúrtak sem liggur til grundvallar kvörðunum miðast við nemendur í 33 skólum sem lögðu spurningalistann fyrir samtals 4.490 nemendur í 6.-10. bekk skólaárið 2008-9.
Nánar má lesa um mælikvarðana í hverjum flokki í listanum hér hægra megin.