Um birtingu

Spurningar einstakra kvarða eru ekki í skjalinu þegar allar niðurstöður eru prentaðar út úr kerfinu. Þetta er gert þar sem að nokkuð algengt er að heildarniðurstöður úr Skólapúlsinum séu gerðar aðgengilegar á heimasíðum skóla.

Aðferðafræðilega er óæskilegt að nemendur hafi aðgang að þeim spurningum sem þeir síðar svara í Skólapúlsinum. Það að lesa spurningarnar í samhengi við niðurstöður skólans getur í einstökum tilfellum haft áhrif á hvernig nemendurnir kjósa að svara spurningalistanum.

Það er aftur á móti í góðu lagi að kennarar og aðrir þeir sem vinna með niðurstöðurnar hafi aðgang að texta spurninganna. Það er m.a. hægt með því að fara inná síðu hvers kvarða og prenta útniðurstöður kvarðans eftir einstökum spurningum. Þar fylgir texti spurninganna með.