Bóas Valdórsson sálfræðingur við MH fór nýlega yfir niðurstöður úr Skólapúlsinum í áhugaverðum fyrirlestri sem birtur var á Facebook síðunni Dótakassinn. Fyrirlesturinn er gott dæmi um hvernig langtímaniðurstöður úr Skólapúlsinum nýtast við innra mat framhaldsskóla. Umfjöllun um niðurstöður úr Skólapúlsinum byrjar á 18. mínútu: https://www.facebook.com/watch/?v=728857394377382
lesa meiraArticles Archive for Year 2020
Starfsmannapúlsinn gerir skólum og sveitarfélögum mögulegt að samræma starfsmannakannanir leik- og grunnskóla við starfsmannakannanir annarra vinnustaða innan sveitarfélagsins. Starfsmannapúlsinn var nýlega kynntur á fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna 2020. Horfa má á kynninguna hér: https://vimeo.com/473793662
lesa meiraNiðurstöður úr könnunum Skólapúlsins eru eign hver skóla fyrir sig og nýttar í lögbundnu innra mati hvers skóla fyrir sig. Mismunandi er hversu ítarlegar upplýsingar hver skóli gerir aðgengilegar úr sínum könnunum. Margir kynna þó niðurstöðurnar almennt á foreldrafundum einnig er eitthvað um að PDF skjöl með tölulegum niðurstöðum séu gerð aðgengileg á heimasíðum. Flestir […]
lesa meiraJá, nemendakönnun 6. – 10. bekkjar er á íslensku, sænsku, dönsku, pólsku, litháísku, filippeysku og ensku. Einnig er hægt að fá könnunina lesna upp á íslensku, sænsku, dönsku, pólsku og ensku. Nemendakönnun 1. – 5. bekkjar er á þremur tungumálum: íslensku, ensku og pólsku. Hægt er að fá könnunina lesna upp á þessum þremur […]
lesa meiraEnskum og pólskum texta og talgervli hefur nú verið bætt við nemendakönnun framhaldsskóla auk íslenskunnar. Síðasta vetur komu fram óskir um að hægt væri að taka nemendakönnun Skólapúlsins á öðrum tímum en í nóvember. Til að verða við óskum um aukin sveigjanleika hefur verið ákveðið að færa könnunina fram um einn mánuð og bjóða uppá […]
lesa meiraFrá og með haustinu 2020 verður hætt að taka á móti þátttakendalistum í tölvupósti. Þessi í stað þarf viðkomandi tengiliður (eða skólastjóri) að skrá sig inn í kerfið á síðunni skolapulsinn.is. Efst á síðunni er listi yfir þær kannanir sem viðkomandi skóli er skráður í. Smella þarf á viðeigandi könnun (sjá mynd 1).
Mynd 1. […]
lesa meiraSkrifstofa Skólapúlsins verður lokuð vegna sumarleyfa frá 1. júlí til 6. ágúst. Ef erindið er brýnt má senda tölvupóst á skolapulsinn@skolapulsinn.is eða hringja í síma 5830700.
lesa meira09.00-10.30 Leikskóli: Foreldra- og starfsmannakönnun
10.45-12.15 Grunnskóli: Nemenda-, foreldra- og starfsmannakannanirásamt eftirvinnslu niðurstaðna samræmdra prófa.
13.30-15.00 Sveitarfélög: Skólavogin og Starfsmannapúlsinn
15.30-17.00 Framhaldsskóli: Nemendakönnun og Starfsmannapúlsinn
lesa meiraSkólapúlsinn býður til vorfundar miðvikudaginn 27. maí næstkomandi. Fundurinn verður að þessu sinni haldinn á Zoom. Krækju á fundinn má finna hér:https://us02web.zoom.us/j/84027222903
Efni fundarins er innihald kannana, niðurstöður og framkvæmd á öllum skólastigum. Farið er yfir helstu niðurstöður, túlkun þeirra útskýrð og rætt hvaða matsþáttum má bæta við og hvaða matsþáttum er ofaukið.
Dagskrá:
09.00-10.30 Leikskóli: […]
lesa meiraNemendakönnun 1. – 5. bekkjar er nú aðgengileg á fimm tungumálum. Þeir nemendur sem ekki hafa enn náð tök á lestri geta nú fengið spurningar og svarmöguleika lesna fyrir sig á íslensku, ensku, pólsku, dönsku og sænsku.
lesa meira