Aðalsíða

Vorfundur 2021 (fjarfundur)

17. maí, 2021

Skólapúlsinn býður til vorfundar fimmtudaginn 10. júní næstkomandi.

Efni fundarins er innihald kannana, niðurstöður og framkvæmd á öllum skólastigum. Farið er yfir helstu niðurstöður, túlkun þeirra útskýrð og rætt hvaða matsþáttum má bæta við og hvaða matsþáttum er ofaukið.

Dagskrá:

09.00-10.30 Leikskóli: Foreldra- og starfsmannakönnun ásamt fyrirhugaðri könnun fyrir börn
10.45-12.15 Grunnskóli: Nemenda-, foreldra- og starfsmannakannanir
ásamt eftirvinnslu niðurstaðna samræmdra prófa.
13.30-15.00 Sveitarfélög: Skólavogin og Starfsmannapúlsinn
15.30-17.00 Framhaldsskóli: Nemendakönnun og Starfsmannapúlsinn

Þeir sem ekki eiga heimangengt á fundinn eru hvattir til að koma skoðunum sínum á framfæri með því að senda okkur tölvupóst á skolapulsinn@skolapulsinn.is.

Upptaka af fundinum verður gerð aðgengileg á vef Skólapúlsins að fundi loknum.

Fundurinn er ætlaður skólastjórnendum og tengiliðum Skólapúlsins/Skólavogarinnar/Starfsmannapúlsins. Vinsamlegast tilkynnið um þátttöku með því að senda tölvupóst á skolapulsinn@skolapulsinn.is fyrir 10. júní næstkomandi.

Bestu kveðjur,
starfsfólk Skólapúlsins