Vorfundur 2014
16. maí, 2014
Skólapúlsinn býður til vorfundar 3. júní næstkomandi í stofu H-101 í húsnæði Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, Stakkahlíð. Efni fundarins er innihald kannana, niðurstöður og framkvæmd á öllum skólastigum. Farið er yfir helstu niðurstöður, túlkun þeirra útskýrð og rætt hvaða matsþáttum má bæta við og hvaða matsþáttum er ofaukið.
Dagskrá:
9.00-10.30 Leikskóli: Foreldrakönnun og fyrirhuguð starfsmannakönnun
10.45-12.15 Grunnskóli: Nemenda-, foreldra- og starfsmannakönnun
13.30-15.00 Framhaldsskóli: Nemendakönnun og fyrirhuguð starfsmannakönnun
15.30-17.00 Sveitarfélög: Skólavogin
Þeir sem ekki eiga heimangengt á fundinn eru hvattir til að koma skoðunum sínum á framfæri með því að svara þessum tölvupósti. Glærur af fundinum verða gerðar aðgengilegar á vef Skólapúlsins að fundi loknum.
Fundurinn er ætlaður skólastjórnendum og/eða tengiliðum Skólapúlsins/Skólavogarinnar. Vinsamlegast tilkynnið um þátttöku með því að senda tölvupóst á skolapulsinn@skolapulsinn.is fyrir 23. maí næstkomandi.
Bestu kveðjur,
Starfsfólk Skólapúlsins