Aðalsíða

Vorfundur 2015

8. maí, 2015
Skólapúlsinn býður til vorfundar þann 3. júní næstkomandi í stofu H-101 í húsnæði Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, Stakkahlíð. Efni fundarins er innihald kannana, niðurstöður og framkvæmd á öllum skólastigum. Farið er yfir helstu niðurstöður, túlkun þeirra útskýrð og rætt hvaða matsþáttum má bæta við og hvaða matsþáttum er ofaukið.

Dagskrá:
9.00-10.30       Leikskóli: Foreldra- og starfsmannakönnun
10.45-12.15     Grunnskóli: Nemenda-, foreldra- og starfsmannakönnun
13.30-15.00     Framhaldsskóli: Nemendakönnun
15.30-17.00     Sveitarfélög: Skólavogin

Þeir sem ekki eiga heimangengt á fundinn eru hvattir til að koma skoðunum sínum á framfæri með því að senda okkur tölvupóst á skolapulsinn@skolapulsinn.is. Glærur af fundinum verða gerðar aðgengilegar á vef Skólapúlsins að fundi loknum.

Fundurinn er ætlaður skólastjórnendum og tengiliðum Skólapúlsins/Skólavogarinnar. Vinsamlegast tilkynnið um þátttöku með því að senda tölvupóst á skolapulsinn@skolapulsinn.is fyrir 23. maí næstkomandi.