Aðalsíða

Vorfundur 2018 – leikskólahluta flýtt um einn dag

9. maí, 2018

Skólapúlsinn býður til vorfundar fimmtudaginn 17. maí næstkomandi í stofu H-101 í húsnæði Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, Stakkahlíð.

Efni fundarins er innihald kannana, niðurstöður og framkvæmd á öllum skólastigum. Farið er yfir helstu niðurstöður, túlkun þeirra útskýrð og rætt hvaða matsþáttum má bæta við og hvaða matsþáttum er ofaukið.

Dagskrá:

09.00-10.30 Leikskóli: Foreldra- og starfsmannakönnun (flýtt til 16. maí frá 15:30-17:00 vegna aðalfundar FSL)
10.45-12.15 Grunnskóli: Nemenda-, foreldra- og starfsmannakönnun og ný nemendakönnun fyrir 1. – 5. bekk.
13.30-15.00 Framhaldsskóli: Nemendakönnun.
15.30-17.00 Sveitarfélög: Skólavogin

Þeir sem ekki eiga heimangengt á fundinn eru hvattir til að koma skoðunum sínum á framfæri með því að senda okkur tölvupóst á skolapulsinn@skolapulsinn.is. Glærur af fundinum verða gerðar aðgengilegar á vef Skólapúlsins að fundi loknum.

Fundurinn er ætlaður skólastjórnendum og tengiliðum Skólapúlsins/Skólavogarinnar. Vinsamlegast tilkynnið um þátttöku með því að senda tölvupóst á skolapulsinn@skolapulsinn.is fyrir 16. maí næstkomandi.