Aðalsíða

Vorfundur Skólapúlsins 2023

17. maí, 2023

Skólapúlsinn býður til vorfundar fimmtudaginn 25. maí næstkomandi. Fundurinn verður haldinn á Zoom.

Efni fundarins er innihald kannana, niðurstöður og framkvæmd á öllum skólastigum. Farið er yfir helstu niðurstöður, túlkun þeirra útskýrð og rætt hvaða matsþáttum má bæta við og hvaða matsþáttum er ofaukið.

Dagskrá:

09.00-10.30 Sveitarfélög: Skólavogin og Starfsmannapúlsinn.
10.45-12.15 Framhaldsskóli: Nemendakönnun og Starfsmannapúlsinn.
13.30-15.00 Grunnskóli: Nemenda-, foreldra- og starfsmannakannanir.
15.30-17.00 Leikskóli: Nemenda-, foreldra- og starfsmannakannanir.

Þeir sem ekki eiga heimangengt á fundinn eru hvattir til að koma skoðunum sínum á framfæri með því að senda okkur tölvupóst á skolapulsinn@skolapulsinn.is.

Upptaka af fundinum verður gerð aðgengileg á vef Skólapúlsins að fundi loknum.

Fundurinn er ætlaður skólastjórnendum og tengiliðum Skólapúlsins/Skólavogarinnar/Starfsmannapúlsins. Vinsamlegast tilkynnið um þátttöku með því að senda tölvupóst á skolapulsinn@skolapulsinn.is fyrir 25. maí næstkomandi.

Bestu kveðjur,
starfsfólk Skólapúlsins