Starfsfólk Skólapúlsins bauð notendum til árlegs samráðsfundar við lok skólaárs á dögunum.
Fundirnir voru fjórir og skipt á tvo daga, 20. og 21. maí. Þeir voru vel sóttir að vanda enda sá vettvangur sem notendur geta lagt til breytingar á könnunum og komið ábendingum af vettvangi, til að mynda um orðalag spurninga, á framfæri. Skólastjórnendur munu fá samantekt yfir ákvarðanir vorfundar sendar í tölvupósti þegar þær hafa verið teknar saman og skráðar.
Fyrir áhugasama er hægt að hlýða á kynningar starfsfólks Skólapúlsins með því að smella hér að neðan:
Framhaldsskólar: Nemendakannanir