Aðalsíða

Nýjung í Skólapúlsinum: Aukakönnun

18. ágúst, 2011

Í vor bættist við kerfið ný þjónusta, Aukakönnun, þar sem hægt verður að hnýta aukaspurningum aftan við hina reglulegu mánaðarkönnun. Nemendur svara þá Skólapúlsinum eins og venjulega en eftir það birtast spurningar sem skólinn hefur valið að hafa með þann mánuðinn. Hægt verður að búa til eigin spurningar eða velja úr safni spurninga og mælikvarða sem bætt verður í grunninn af notendum og aðstandendum Skólapúlsins. Með þessari viðbót stækkar nemendakönnunin þannig að hægt verður að notað kerfið til að fylgjast með fleiri þáttum í skólastarfinu.