Aðalsíða

Samræmd foreldrakönnun grunnskóla í febrúar

13. janúar, 2015

Samræmd foreldrakönnun Skólapúlsins í grunnskólum fyrir skólaárið 2014-15 verður framkvæmd í febrúar næstkomandi. Hægt er að staðfesta þátttöku skóla í könnuninni með því að senda inn lista yfir foreldra nemenda skólans fyrir 28. janúar. Áður en foreldralistinn er sendur inn er mælst til þess að skólinn gefi foreldrum færi á að hafna þátttöku. Foreldrabréfið og nákvæmar leiðbeiningar um framkvæmd má finna hér: http://skolapulsinn.is/um/?page_id=1126