Aðalsíða
Velkomin á heimasíðu Skólapúlsins. Skólapúlsinn er verkefni sem Kristján Ketill Stefánsson sérfræðingur í kennslufræði og Almar M. Halldórsson sérfræðingur í rannsóknaraðferðum í félagsvísindum vinna að. Skólapúlsinn er vefkerfi sem miðar að því að veita skólastjórnendum stöðugan aðgang að nýjum upplýsingum sem aflað er mánaðarlega um þætti sem tengjast virkni nemenda og líðan þeirra í skólanum og um skóla- og bekkjaranda. Niðurstöður um stöðu nemenda í 6.-10. bekk eru bornar saman við niðurstöður fyrri mælinga í skólanum og við landsmeðaltal sem gefur skýrar vísbendingar um þróun mála í skólanum og stöðu nemenda í skólanum miðað við nemendur í öðrum skólum í landinu. Gerð spurningakvarða og forritun vefviðmóts hófst í byrjun árs 2008 og forprófanir fóru fram í apríl og maí það ár. Skólaárið 2008-2009 var fyrsta ár Skólapúlsins í notkun. Nú fá þátttökuskólar upplýsingar um stöðu nemenda sinna reglulega í línuritum. Grunnskólar víðs vegar á landinu eru skráðir í verkefnið en nemendur í 6.-10. bekk taka þátt. Í þátttökuskólunum er tæplega helmingur allra grunnskólanemenda í þessum bekkjum á landinu.
FRÉTTIR
13. júlí 2011
Verkefnastjóri í aðgerðum gegn einelti
Nýverið funduðum við með Kolbrúni Baldursdóttur nýráðnum verkefnastjóra í aðgerðum gegn einelti. Staða verkefnastjórans er á vegum þriggja ráðuneyta með aðsetur í mennta- og menningarmálaráðuneytinu. Á fundinum kynntum við aðferðafræði Skólapúlsins við mælingar á líðan nemenda og notkun þeirra við skólaþróun.
Kolbrún vill gjarnan aðstoða notendur Skólapúlsins við innleiðingu aðgerða gegn einelti í skólunum og leggja mat á árangurinn með notkun Skólapúlsins. Við viljum hvetja þá skóla sem sérstaklega vinna að aðgerðum gegn einelti að hafa samband við hana og nýta sér þá aðstoð sem hún hefur uppá að bjóða við þá vinnu. Tölvupóstur Kolbrúnar er kolbrungegneinelti@gmail.com og síminn hjá henni er 899-6783.
30. maí 2011
Línurit fyrir ársmeðaltöl
Nú hafa margir skólar notað Skólapúlsinn til sjálfsmats í 2-3 ár. Að því tilefni hefur verið bætt við línuriti á hverja kvarðasíðu sem sýnir öll skólameðaltöl og landsmeðaltöl sem skólinn hefur myndað frá upphafi. Jafnframt hefur útlit kvarðasíðnanna verið endurbætt og samræmt.
13. maí 2011
Að loknum vorfundi
Árlegur vorfundur Skólapúlsins var haldinn þriðjudaginn 10. maí sl. Glærusýningunni frá fundinum er hægt að hala niður af síðunni gagnleg skjöl.
Á fundinum komu styrkleikar Skólapúlsins sem langtímamiðað sjálfsmatstæki berlega fram. Nú í lok skólaársins eru skóla- og landsmeðaltölin fyrir árið í heild sinni búin að myndast. Þetta gefur einstaka möguleika á samanburði á milli núverandi skólaárs og síðasta skólaárs hjá þeim skólum sem tekið hafa þátt bæði árin.
Á fundinum kom t.d. fram að kvíði og vanlíðan hefur heldur lækkað á milli ára hjá þátttökuskólum Skólapúlsins en sjálfsálit hefur heldur aukist (sjá nánar í glærukynningu). Þó breytingin sé lítil á milli ára þá er ljóst að líðan nemenda hjá þátttökuskólum Skólapúlsins hefur að meðaltali ekki dalað á milli ára.
Í umræðum um breytingar á kjarnaspurningalistanum kom fram hugmynd um að fjarlægja mælingar á fjarveru. Rætt var um að skólarnir hefðu þegar góðar upplýsingar um fjarvistir í gegnum Mentor, stytta mætti spurningalistann og að niðurstöður fjarverumælinganna hefðu ekki reynst eins gagnlegar til sjálfsmats og aðrar mælingar í Skólapúlsinum. Einnig hefur verið rætt um gagnsemi þess að mæta áherslum í aðalnámskrá og bæta inn spurningum um lýðræði og umhverfismál.
Sem viðbrögð við þessari umræðu viljum við kanna hug tengiliða og skólastjórnenda um mögulegar breytingar á kjarnaspurningalistanum. Á næstu dögum verður send út stutt könnun um þetta efni til tengiliða og skólastjórnenda. Hvetjum við alla til að leggja orð í belg.
9. maí 2011
Vorfundur Skólapúlsins 2010
Árlegur vorfundur Skólapúlsins verður haldinn þriðjudaginn 10. maí næstkomandi klukkan 15:00-16:00 í sal Námsmatsstofnunar að Borgartúni 7A.
Allir áhugasamir eru velkomnir á fundinn. Þeir sem ekki komast á fundinn geta fengið glærurnar sendar í tölvupósti eftir fundinn, þeim er einnig bent á að hafa samband í síma 5830700 eða í tölvupósti á kristjan@skolapulsinn.is til að koma á framfæri ábendingum og/eða spurningum til fundarins. Þeir sem luma á gagnlegum dæmum um notkun við stefnumótun og þróunarstarf eru einnig hvattir til að koma þeim á framfæri við skipuleggjendur fundarins.
Að lokum viljum við benda á að í vor verður hægt að bóka samantektarfyrirlestra fyrir einstaka skóla þar sem að helstu niðurstöður frá mælingum ársins verða dregnar fram og þær ræddar í ljósi þróunar innan árs og milli ára þar sem það er mögulegt. Miðað er við taxta SRR (Símenntun, rannsóknir, ráðgjöf) hjá Menntavísindasviði HÍ.
21. mars 2011
Nýjung í Skólapúlsinum: Aukakönnun
Í dag bætist við kerfið ný þjónusta, Aukakönnun, þar sem hægt verður að hnýta aukaspurningum aftan við hina reglulegu mánaðarkönnun. Nemendur svara þá Skólapúlsinum eins og venjulega en eftir það birtast spurningar sem skólinn hefur valið að hafa með þann mánuðinn. Hægt verður að búa til eigin spurningar eða velja úr safni spurninga og mælikvarða sem bætt verður í grunninn af notendum og aðstandendum Skólapúlsins. Með þessari viðbót stækkar nemendakönnunin þannig að hægt verður að notað kerfið til að fylgjast með fleiri þáttum í skólastarfinu.
1. desember 2010
Haustfundur Skólapúlsins 2010
Haustfundur Skólapúlsins var haldinn í gær. Rætt var um túlkun niðurstaðna úr kerfinu fyrir sjálfsmat, nýjungar í kerfinu, rannsóknir og breytingar á vistun gagna. Margar gagnlegar ábendingar komu fram í umræðum sem munu nýtast við áframhaldandi þróun kerfisins. Glærurnar frá fundinum eru aðgengilegar á síðunni „Gagnleg skjöl“ á heimasíðu Skólapúlsins. Einnig er hægt að nálgast glærurnar með því að smella á slóðina hér fyrir neðan:
22. nóvember 2010
Breytingar á vistun gagna
Eftir fund með lögfræðingum Persónuverndar í dag er ljóst að nauðsynlegar breytingar á vistun gagnanna koma ekki niður á þjónustunni og framkvæmd sjálfsmats getur því farið fram óbreytt þar sem að persónuupplýsingar um heilsuhagi verða ekki lengur vistaðar í kerfinu. Einnig verður öllum fyrri persónuupplýsingum um heilsuhagi eytt úr kerfinu.
Þessar breytingar hafa töluverðar afleiðingar fyrir rannsóknartilgang verkefnisins og gera það að verkum að ekki verður hægt að framkvæma langsniðsrannsóknir til að auka skilning á þroska og námsaðstæðum barna á landsvísu eins og fyrirhugað var. Rannsóknartilgangurinn mun því víkja svo unnt sé að halda þjónustunni óbreyttri. Þann 30. nóvember klukkan 14:00 verður haustfundur Skólapúlsins haldinn í sal Námsmatsstofnunar. Þar verða rannsóknarmöguleikar kerfisins ræddir og mörkuð stefna fyrir rannsóknir með notkun gagna í Skólapúlsinum í framtíðinni. Áhugasamir eru hvattir til að mæta eða senda okkur línu fyrir fundinn.
21. nóvember 2010
Persónuvernd úrskurðaði hinsvegar nýlega að skólum væri óheimilt að safna persónugreinanlegum upplýsingum um heilsuhagi með spurningalista Skólapúlsins án skriflegs samþykkis foreldra. Í kjölfar þessa verður öllum persónuupplýsingum um heilsuhagi eytt úr kerfinu nema að fyrir liggi skriflegt samþykki foreldra. Aðstandendur Skólapúlsins vinna nú að því ásamt Persónuvernd að tryggja að í einu og öllu sé farið að persónuverndarlögum við notkun kerfisins við sjálfsmat skóla.
16. nóvember 2010
5 nýjungar í Skólapúlsinum
Nú í nóvemberbyrjun var 5 nýjungum í kerfinu hleypt af stokkunum: Mati á trú nemenda á eigin getu hefur verið breytt, bætt hefur verið við mælingu á trú nemenda á eigin vinnubrögð í námi, bætt hefur verið við punktariti sem sýnir röðun skólans miðað við aðra skóla, nú er hægt að hafa samband við þrjá hæstu skólana (undir nafnleynd) á hverjum matsþætti að lokum hefur fylgnitöflu hefur verið bætt við sem sýnir tengsl milli matsþátta.
5. nóvember 2010
Grein eftir Brian á Good
Brian skrifaði fyrir stuttu grein á Bandaríska veftímaritið Good. Greinin hefur hlotið góðar viðtökur en hana má lesa hér: http://www.good.is/post/why-iceland-evaluates-its-students-self-esteem. Einnig er forvitnilegt að skoða Twitter sendingar í tengslum við greinina: http://search.twitter.com/search?q=%22Why+Iceland+Evaluates%22
9. september 2010
Viðtal við Kristján á Rás 2
Kristján var gestur í Morgunútvarpi Rásar 2 í morgun í tilefni af erindi sem hann heldur í dag hjá Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum (RIKK) við HÍ. Þar ræddi hann m.a. um niðurstöður úr Skólapúlsinum um kynjamun í líðan nemenda. Hægt er að hlusta á viðtalið hér.
14. ágúst 2010
Uppfært viðmót á niðurstöðusíðum skóla
Að undanförnu hefur verið rýnt í skipulag og framsetningu niðurstaðna í Skólapúlsinum. Þó nokkrar breytingar hafa verið gerðar og prófaðar í mismunandi tegundum vafra og með mismunandi skjástærðum. Ekki hika við að senda línu á skolapulsinn@skolapulsinn.is ef að frekari breytinga er þörf.
10. ágúst 2010
Ný bók frá Brian
Út er komin bókin A Practical Guide to Designing with Data eftir Brian Suda, hönnuð og kerfisfræðing Skólapúlsins. Bókin er yfir 220 síður og skartar yfir hundrað litmyndum. Fyrstu þrír kaflarnir fjalla um sögu myndrita, liti og blekkingar og síðustu tveir fjalla um myndritagerð, kosti og galla ólíkra aðferða við framsetningu á tölugögnum og val á bestu aðferð hverju sinni. Bókin er gefin út af Five simple steps og er fáanleg á heimasíðu þeirra.
2. ágúst 2010
Öflugri marktektarpróf fyrir lítil úrtök
Marktektarpróf Skólapúlsins greina nú frelsisgráður út frá fjölda í úrtaki eftir hinni svokölluð Welch–Satterthwaite jöfnu. Þetta þýðir að skólar með lítil úrtök (15-30 nemendur) geta nú tekið þátt í Skólapúlsinum og fengið viðeigandi marktektarpróf til að athuga hvort að skólinn er frábrugðinn landsmeðaltali á þeim kvörðum sem mældir eru í Skólapúlsinum.
20. júlí 2010
Nýtt símanúmer
Skólapúlsinn er nú kominn með nýtt símanúmer með sér talhólfi. Nýja símanúmerið er 5830700. Ekki hika við að hringja ef að einhverjar spurningar vakna varðandi kerfið og þjónustuna.
13. maí 2010
Skólapúlsinn fyrir fámenna skóla, fjórir skólar á Vestfjörðum prófa kerfið
Á fyrsta ári Skólapúlsins var kerfið hannað fyrir skóla sem hafa 40 eða fleiri nemendur í 6.-10. bekk. Fyrir næsta skólaár hefur það verið aðlagað fyrir skóla með færri en 40 nemendur í 6.-10. bekk, en þó að lágmarki 15 nemendur. Fjórir slíkir skólar á Vestfjörðum ríða á vaðið nú í maí og prófa kerfið: Súðavíkurskóli, Grunnskóli Önundarfjarðar, Grunnskólinn Suðureyri og Grunnskólinn á Þingeyri. Bjóðum við þá innilega velkomna.
15. apríl 2010
Tvær nýjungar í apríl
Tvær nýjungar líta dagsins ljós í Skólapúlsinum nú í apríl sem eru liðir í samstarfi við Tækniþróunarsjóð.
Sú fyrri er umræðuvefur sem gerir notendum kleift að ræða saman og deila upplýsingum á lokuðu svæði um kerfið, s.s. um niðurstöður, notkun þeirra í skólastarfi, ráðleggingar um breytingar á kerfinu, vandamál sem koma upp osfrv. Vefurinn hefur burði til að vera afar virkur með 58 þátttökuskóla í kerfinu.
Sú seinni er að nú er lokið þýðingu á spurningalista á litháísku og filippeysku og geta nemendur nú svarað honum á þeim tungumálum. Nú er spurningalistinn á sjö tungumálum: Íslensku, sænsku, dönsku, pólsku, litháísku, filippeysku og ensku.
22. mars 2010
Um notkun mælinga Skólapúlsins við sjálfsmat
Á undanförnum vikum hefur farið fram umræða í nokkrum skólum á höfuðborgarsvæðinu um notkun mælinga úr Skólapúlsinum við sjálfsmat. Sem dæmi um slíka notkun höfum við fengið leyfi Laugalækjarskóla til að sýna hvernig atriði úr Skólapúlsinum geta nýst til að leggja mat á einstök markmið úr stefnu skólans. Sjá nánar hér.
5. febrúar 2010
Tvær nýjungar í samstarfi við Tækniþróunarsjóð
Nú í febrúar hefur tveimur nýjum hlutum verið bætt við Skólapúlsinn sem unnið hefur verið að undanfarna mánuði með stuðningi Tækniþróunarsjóðs RANNÍS. Fyrri nýjungin er að niðurstöður eru nú birtar eftir einstökum liðum spurningasafna allt frá fyrstu mælingu skólaársins 2009-2010, með samanburði við svörun á landsvísu. Það gerir notendum kleift að greina á nákvæmari hátt einkenni nemenda og leita skýringa á þeim. Seinni nýjungin er að nú geta nemendur með sænsku, dönsku, pólsku eða ensku sem móðurmál séð spurningarnar á sínu móðurmáli. Spurningalistarnir hafa verið þýddir af tveimur óháðum aðilum, þýðingarnar samræmdar af þriðja aðila og prófarkalesnar af fjórða aðila. Á næstu mánuðum verður spurningalistinn einnig á litháísku og filippeysku en unnið er að þeim þýðingum í samstarfi við Alþjóðahús.
2. febrúar 2010
Hólabrekkuskóli er nýjasti skólinn í Skólapúlsinum
Við bjóðum Hólabrekkuskóla hjartanlega velkominn sem 58. þátttökuskólann.
8. desember 2009
Tveir nýjir skólar taka upp Skólapúlsinn á nýju ári
Við bjóðum Hlíðaskóla og Hjallaskóla hjartanlega velkomna í Skólapúlsinn. Þar með er kerfið notað í 57 grunnskólum um allt land, þar af 39 skólar með 1.-10. bekk, 12 skólar með grunn- og miðstig og 4 skólar með unglingastig. Í þessum skólum eru 42% af öllum nemendum á landinu í 6.-10. bekk. Nánari upplýsingar um notkun kerfisins á þessu skólaári er að finna á Mælaborðinu.
18. nóvember 2009
Skólapúlsinn hlýtur Hagnýtingarverðlaun á Nýsköpunarmessu HÍ
Hagnýtingarverðlaun Háskóla Íslands voru afhent á Nýsköpunarmessunni en að þessu sinni bárust 18 tillögur sem er met. Hagnýtingarverðlaunin eru veitt þeim aðilum innan Háskólans sem draga fram í dagsljósið hugmyndir sem hagnýta má, m.a. í atvinnurekstri. Skólapúlsinn hlaut 2. verðlaun og eru þau hvatning fyrir aðstandendur verkefnisins að halda þróun þess áfram. Sjá nánar frétt Háskólans.
10. nóvember 2009
Haustfundur Skólapúlsins
Haustfundur Skólapúlsins var haldinn þann 10. nóvember í sal Námsmatsstofnunar. Rúmlega 30 skólastjórar, tengiliðir Skólapúlsins og annað starfsfólk mætti á fundinn og tók þátt í líflegri umræðu um niðurstöður frá árinu 2007-2008, notkun Skólapúlsins í sjálfsmati og frekari þróun á kerfinu. Kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. Glærur frá haustfundinum er að finna á síðunni Gagnleg skjöl.
1. júlí 2009
Skólapúlsinn fær frumherjastyrk frá Tækniþróunarsjóði
Skólapúlsinn fékk nýverið úthlutað styrk til frekari þróunar og markaðssetningar á kerfinu. Þrefalt fleiri umsóknir bárust Tækniþróunarsjóði á þessu ári en á sama tíma í fyrra. Styrkurinn er mikil viðurkenning fyrir verkefnið og gerir okkur kleift að þróa þjónustuna til fulls í samráði við kennara og skólastjórnendur.