Í dag var tekin í notkun skilvirkari aðferð við að færa skýrslur yfir á pdf form á síðunni nidurstodur.skolapulsinn.is. Nú tekur styttri tíma að útbúa slík skjöl sem dregur verulega úr líkum á því að upp komi vandamál við þá aðgerð í kerfinu.
Nú hafa mælingar farið fram í öllum könnunum skólaársins hjá Skólapúlsinum. Tveir mælingarmánuðir eru eftir af nemendakönnun þar sem nemendahóp skólanna er skipt í úrtök yfir skólaárið. Síðasta mæling nemendakönnunar verður í maí.
Niðurstöður samræmdrar starfsmannakönnunar grunnskóla og foreldrakönnunar leikskóla voru birtar skólunum fyrr í þessum mánuði. Líkt og fyrri ár var þátttaka í þessum könnunum […]
Niðurstöður samræmdrar foreldrakönnunar grunnskóla og starfsmannakönnunar leikskóla eru orðnar hluti af niðurstöðum skólanna í Skólapúlsinum. Gagnasöfnun samræmdrar foreldrakönnunar leikskóla og starfsmannakönnunar grunnskóla fór fram í mars og lýkur um helgina. Úrvinnsla hefst því í næstu viku og er niðurstaðna að vænta um viku síðar. Líkt og áður var þátttaka góð og svarhlutfall hjá stórum hluta […]
Samræmd starfsmannakönnun Skólapúlsins í leikskólum fyrir skólaárið 2015-16 verður framkvæmd í næsta mánuði. Að þessu sinni verður einnig í boði að taka könnunina á ensku. Hægt er að staðfesta þátttöku leikskóla í könnuninni með því að senda inn lista yfir starfsfólk fyrir 27. janúar 2016. Nákvæmar leiðbeiningar um framkvæmd má finna hér: http://skolapulsinn.is/um/?page_id=1506
Samræmd foreldrakönnun Skólapúlsins í grunnskólum fyrir skólaárið 2015-16 verður framkvæmd í febrúar næstkomandi. Hægt er að staðfesta þátttöku skóla í könnuninni með því að senda inn lista yfir foreldra nemenda skólans fyrir 27. janúar. Áður en foreldralistinn er sendur inn er mælst til þess að skólinn gefi foreldrum færi á að hafna þátttöku. Foreldrabréfið og […]
Í kringum 1000 framhaldsskólanemar víða af landinu tóku þátt samræmdri nemendakönnun sem unnin var af Skólapúlsinum í nóvembermánuði síðastliðnum. Nemendur fengu könnunina bæði senda í tölvupósti og með sms skilaboðum. Könnuninni má svara beint á snjallsímum og tekur um 15 mínútur. Könnunin var nú framkvæmd í þriðja sinn og fengu þátttökuskólar niðurstöður með samanburði við […]
Skrifstofa Skólapúlsins verður lokuð frá aðfangadegi og fram til sunnudagsins 3. janúar.
Við óskum ykkur gleðilegrar hátíðar og þökkum fyrir samstarfið á árinu sem er að líða.
Nemendakönnun skólaársins 2015 til 2016 hefur verið ýtt úr vör. Margir skólar hafa þegar lagt könnunina fyrir en mjög stór hluti þátttökuskólanna gerir sína fyrstu mælingu í komandi mánuði, október.
Með tilkomu nýrra greiningaraðferða var unnt að fjarlægja spurningar úr könnuninni án þess að draga úr réttmæti kvarðanna.
Könnunin inniheldur 18 matsþætti líkt og áður en 18 […]
Skólapúlsinn bauð til vorfundar 3. júní 2015. Efni fundarins var innihald kannana, niðurstöður og framkvæmd á öllum skólastigum. Farið var yfir helstu niðurstöður, túlkun þeirra útskýrð og rætt hvaða matsþáttum má bæta við og hvaða matsþáttum var ofaukið.
Hægt er að skoða upptökur af fundinum með því að smella á viðkomandi krækjur hér fyrir neðan.
9.00-10.30 […]
Vegna nýlegrar umfjöllunar um Skólapúlsinn viljum við koma því á framfæri að leyfi var fengið hjá þáverandi skólastjóra Landakotsskóla fyrir notkun á myndum í kynningarefni Skólapúlsins sem og leyfi hjá foreldrum allra barna sem fram koma á myndunum.
Jafnframt kemur ekki fram í svari Skólapúlsins til Persónuverndar frá árinu 2010 að litið sé á nemendur sem […]