Niðurstöðum úr foreldra- og starfsmannakönnunum í leik- og grunnskólum sem fram fóru í febrúar og mars hefur nú verið skilað til viðkomandi skólastjóra. Í heildina er um að ræða 180 tölfræðiskýrslur sem gefnar hafa verið út í mars og apríl. Á næstu dögum verða unnar skýrslur fyrir sveitarfélög viðkomandi skóla til birtingar í Skólavoginni þar […]
Hafin er þýðing á nýju íslensku mælitæki fyrir vellíðan í skóla fyrir 1. – 5. bekk. Mælitækið byggir á nýlegu bresku mælitæki sem unnið var af McLellan og Steward (2015). Mælitækið var forprófað í Bretlandi með 5170 nemendum á aldrinum 7-15 ára og gaf góða raun. Fyrirhugað er að íslenska útgáfan verði einfaldari í sniðum […]
Foreldrakönnun grunnskóla og starfsmannakönnun leikskóla hófust í gær. Athygli vekur að þegar sólarhringur er liðinn af foreldrakönnuninni hefur um 10% úrtaksins þegar svarað og rúmlega helmingur þátttakenda hefur kosið að svara með því að nota snjallsíma. Kannanirnar verða opnar til loka mánaðarins og niðurstöður þeirra verða birtar með nafnlausum samanburði milli skóla í byrjun mars.
Skrifstofa Skólapúlsins verður lokuð frá frá 21. desember til og með 2. janúar. Starfsfólk Skólapúlsins óskar nemendum, foreldrum og starfsfólki í leik-, grunn- og framhaldsskólum um allt land gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
Fram til þessa hefur verið litið svo á að söfnun ópersónugreinanlegra upplýsinga í þágu innra mats skóla skv. lögum um grunn-, leik- og framhaldsskóla sé undanskilin skriflegu samþykki foreldra. Slíkt samþykki er annars skýr krafa þegar um almennar vísindarannsóknir er að ræða. Nokkrir skólar hafa viljað ganga lengra í þessum efnum og safna skriflegu samþykki […]
Ný evrópsk persónuverndarlöggjöf verður innleidd á Íslandi í maí á næsta ári. Nýja löggjöfin skyldar vinnsluaðila að veita nægjanlegar tryggingar fyrir því að þeir geri viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar ráðstafanir til að vinnsla uppfylli kröfur persónuverndarlaga og að vernd réttinda skráðra einstaklinga sé tryggð. Skólapúlsinn hefur því hafið vinnu við nýja vinnslusamninga við alla þá aðila sem […]
Átta framhaldsskólar víðsvegar um land leggja nú fyrir samræmda nemendakönnun um líðan, námsumhverfi, virkni og skólabrag. Athygli vekur að notkun á SMS áminningum virðist höfða vel til snjallsímavæddra framhaldsskólanema. Eins og sjá má á myndinni fór notkun á snjallsímum til svörunar í yfir 90% í kjölfarið á notkun SMS áminningar í dag.
Í dag voru birtar fyrstu niðurstöður skólaársins um virkni, líðan og skóla- og bekkjaranda í 6. – 10. bekk í 96 skólum um land allt. Um er að ræða nafnlaus svör tæplega 5000 nemenda við könnun sem skólarnir lögðu fyrir á samræmdan hátt. Niðurstöðurnar gera skólunum mögulegt að byggja ákvarðanir í skólastarfi vetrarins á áreiðanlegum samtímasamanburði við sambærilega […]
Ánægja af lestri í Oddeyrarskóla jókst töluvert á síðasta skólaári skv. mælingum sem gerðar voru með Skólapúlsinum. Þegar rýnt var í niðurstöður skólans kom í ljós að breytingin varð í kjölfar uppsetningar á LESTU hillum á degi íslenskrar tungu og umræðu um lestur sem henni fylgdi. Oddeyrarskóli birti frétt á heimasíðu skólans sem […]